Landris og jarðskjálftar við Krísuvík
Hrina smáskjálfta hófst við vesturenda Kleifarvatns síðastliðna nótt þ.e. rétt við Krísuvík. Fram (http://www NULL.eldgos NULL.is/wp-content/uploads/2010/11/reykjanesskagi30nov2010 NULL.jpg)kemur á vísi.is (http://visir NULL.is/grannt-fylgst-med-landrisi-vid-krysuvik/article/2010661548606) að landris hafi hafist á þessu svæði í fyrra en gengið svo til baka. Síðastliðið vor hófst landrisið svo aftur og er talið stafa annaðhvort af völdum kvikuinnstreymis eða þrýstingsbreytingum á jarðhitasvæðum á þessum slóðum.
Meðfylgjandi kort sem er fengið af vefsvæði Veðurstofunnar (http://vedur NULL.is/skjalftar-og-eldgos/jardskjalftar/reykjanesskagi/) sýnir upptök skjálftanna. Þetta er á alkunnu skjálftasvæði en það sem vekur áhuga núna er landrisið á svæðinu. Ekki er þó talið að eldgos sé í aðsigi en síðast urðu staðfest gos á Reykjanesskaganum á 13. öld. Smelltu hér til að sjá umfjöllun um eldstöðvar á Reykjanesskaganum. (http://www NULL.eldgos NULL.is/reykjanesskagi)
Skildu eftir svar