Lausapenni óskast!

Birta á :

Eldgos.is óskar eftir áhugasömum jarðfræðinema eða jarðfræðingi sem vill skrifa færslur þegar eitthvað er um að vera og jafnvel taka þátt í áframhaldandi þróun vefsins.  Það á enn eftir að setja inn efni um nokkur merkileg elstöðvakerfi ss.  Öskju, Kverkfjöll og Hofsjökul svo dæmi séu tekin.  Þá er það einnig í farvatninu að þýða síðuna á ensku.

Eldgos.is hefur verið haldið uppi af einum áhugamanni. Það sem helst hamlar þróun vefsins er tímaskortur og er það ástæðan fyrir því að eigandi lénsins óskar eftir samstarfi.  Ekki getur verið um launað starf að ræða því vefurinn skilar engum tekjum.   Það er þó vafalítið gott veganesti fyrir t.d. jarðfræðinema að geta bent á skrif sín á eldgos.is  í ferilskrá eða öðru slíku.    Áhugasamir sendi póst á svordtail@yahoo.com

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt.

Scroll to Top