Brennisteinsfjöll og Þórisjökull skjálfa

Birta á :
Upptök skjálfta við Þórisjökul
Heimild: Veðurstofa Íslands

Undanfarna sólarhringa hefur þrálát jarðskjálftahrina staðið yfir á afmörkuðu svæði í norðausturenda Brennisteinsfjallakerfisins, skammt frá Litlu Kaffistofunni og Hellisheiðarvirkjun.  Stærsti skjálftinn náði M 4,5 og fannst víða á Suðvesturlandi. Nokkrir skjálftar hafa verið um og yfir M 3 af stærð og sumir hverjir fundist. 

Skjálftavirkni á þessum stað er ekki óvenjuleg en þó kemur á óvart hve lengi hrinan verðist ælta að endast. Þetta eru sniðgengisskjálftar og ættu ekki að boða neitt meira en þó verður alltaf að hafa varann á varðandi þetta kerfi því það á inni stóran skjálfta sem lengi hefur mátt búast við.  Þetta er auðvitað hluti af Reykjanesskaganum og því sem er í gangi þar. Spenna er á öllum skaganum sem veldur staðbundnum hrinum hér og þar, t.d. við Reykjanestá, Krýsuvík og í Brennisteinsfjallakerfinu.

Nokkuð hefur skolfið undanfarið í grennd við Þórisjökul og Prestahnjúka í Langjökulskerfinu undanfarið og virknin aukist síðustu vikur. Í kvöld urðu tveir nokkuð sterkir skjálftar, annar M 3,8 og 3,3. Fjöldi eftirskjálfta hefur mælst. Þetta er athyglisvert kerfi. Oft mikið um skjálfta þarna en eldvirkni til þess að gera lítil á nútíma. Aðeins eitt eldgos hefur orðið á þessum slóðum eftir landnám. Það varð um árið 900 þegar Hallmundarhraun rann.  Það var mikið gos en var töluvert norðar en núverandi virkni er.  

Skjálftarnir eru sumir hverjir nokkuð djúpir sem gæti bent til þess að kvika sé að hreyfa sig á miklu dýpi. Það er rétt að geta þess að þegar eldvirkni var í gangi á Reykjanesskaganum fyrir 800-1200 árum þá urðu gos bæði í Langjökli og í Ljósufjallakerfinu sem einmitt hefur skolfið undanfarin misseri. Það bendir margt til þess að tengsl séu á milli virknistímabila í vestara gosbeltinu.

Scroll to Top