870‑1499

Birta á :

Menn höfðu ýmislegt þarfara að gera á fyrstu öldum Íslandsbyggðar en að skrá niður eldgos.  Ritaðar heimildir eru því takmarkaðar nema í stærstu gosum og þeim sem urðu nálægt byggð.  Sem dæmi eru afskaplega fáar heimildir um gos í Vatnajökli þó vitað sé að þar gekk oft mikið á.

Á þessu tímabili er þó allmikið um sannkölluð stórgos sem eru gerð skil annarsstaðar á síðunni.  Má þar nefna Kötlu – Eldgjár gosið 934,  mjög öflugt Heklugos 1104 og feiknalegt sprengigos í Öræfajökli 1362.  Þá var mikil virkni á Reykjanesskaga á þessu tímabili.  Það er ljóst að það eru gos sem gætu valdið miklum usla í dag þó þau hafi ekki verið stór, þau voru ískyggilega nálægt byggð – og nú er mun þéttbýlla á Reykjanesskaganum en var á þessum tímum.

Eldstöð ár hefst ár lýkur gosefni mk3 tegund goss Auðkenni Aðrar upplýsingar
Bárðarbunga 870 3,3 gjóskugos Vatnaöldugosið Gjóskulög mynda landnámslagið svokallaða
Torfajökull 870 hraungos Samhliða Vatnaöldugosi í Bárðarbungukerfi
Langjökull 900 hraungos Hallmundarhraun líklega runnið mjög snemma á 10.öld
Katla 920 gjóskugos gos í jökli
Eyjafjallajökull 920 gjóskugos gos í jökli Samtímis eða á undan Kötlu
Katla 934 19 Blandgos Eldgjár gosið Mesta gos á Íslandi eftir landnám
Bárðarbunga 940 gjóskugos gos í jökli
Reykjanesskagi 1000 hraungos nokkur gos um þetta leiti á Bláfjallasvæðinu
Bárðarbunga 1080 gjóskugos gos í jökli
Hekla 1104 2,5 Stærsta gos Heklu á sögulegum tíma
Reykjanesskagi 1151 hraungos nokkur gos um þetta leiti nærri Krísuvík
Hekla 1158 mikið gos
Bárðarbunga 1160 gjóskugos gos í jökli
Katla 1179 gjóskugos gos í jökli
Reykjanesskagi 1188 hraungos
Hekla 1206
Reykjanesskagi 1210 1240 hraungos nokkur gos um þetta leiti vestast á skaganum
Reykjaneshryggur 1211 gjóskugos gos i sjó Eyja myndast og hverfur undan Reykjanesi
Hekla 1222
Reykjaneshryggur 1223 gjóskugos gos i sjó
Reykjaneshryggur 1226 gjóskugos gos i sjó Allmikið gos 2-3km sv af Reykjanesi
Reykjaneshryggur 1231 gjóskugos gos i sjó
Reykjaneshryggur 1238 gjóskugos gos i sjó
Reykjaneshryggur 1240 gjóskugos gos i sjó
Katla 1245 gjóskugos gos í jökli
Katla 1262 gjóskugos gos í jökli
Bárðarbunga 1280 hraungos Frambrunahraunið Ártal ekki öruggt, en um þetta leiti
Hekla 1300 mikið gos
Reykjaneshryggur 1340 gjóskugos gos i sjó
Reykjanesskagi 1340 hraungos
Hekla 1341 mikið gos
Katla 1357 gjóskugos gos í jökli
Reykjanesskagi 1360 hraungos
Öræfajökull 1362 10 gjóskugos gos í jökli Stórgos sem olli gífurlegu tjóni
Hekla 1389
Bárðarbunga 1410 gjóskugos gos í jökli
Katla 1416 gjóskugos gos í jökli
Hekla 1440 norðan og sunnan við Heklu
Katla 1440 gjóskugos gos í jökli
Reykjaneshryggur 1442 gjóskugos gos i sjó
Bárðarbunga 1477 gjóskugos gos í jökli
Bárðarbunga 1480 3,9 gjóskugos Veiðivatnagosið Mest gjóska ,einnig 0,4 km hraun
Torfajökull 1480 hraungos Samhliða Veiðivatnagosi í Bárðarbungukerfi
Scroll to Top