Nútíminn– fyrir landnám

Birta á :

það er auðvitað útilokað að gera öllum eldgosum á Íslandi síðustu 10-12 þúsund ár skil en hér verða nefnd þau helstu sem vitað er um.  Eins er aldurinn að sjálfsögðu ekki nákvæmur, því eldri sem gosin eru talin vera því meiri er skekkjan.  Vísindamenn hafa þó þróað furðu nákvæmar aðferðir til að aldursgreina gjóskulög – sér í lagi svokallaðar kolefnisaldursgreiningar.

Fyrri hluta tímabilsins voru svokölluð dyngjugos algeng.  Þá var ísaldarjökullinn að hopa.  Samfara því lyftist landið þegar þungi íssins hvarf og eldgos urðu tíðari á tímabili.  Dyngjurnar eru flestar taldar myndaðar í stökum gosum frekar en hrinum, gjarnan mjög löngum og utan hefðbundinna megineldstöðva.  Stærsta dyngja landsins er Skjaldbreið.  Fjallið myndaðist í einu áratuga löngu gosi í Langjökulskerfinu fyrir um 10.000 árum.

Þá er gosið sem myndaði Þjórsárhraunið mikla  fyrir um 8.500 árum talið eitthvert mesta hraungos á jörðinni síðustu 10.000 ár.  Það er ættað úr Bárðarbungukerfinu eins og fleiri stórgos.

Einnig eru eftirtektarverð tvö mjög öflug súr sprengigos í Snæfellsjökli á þessu tímabili.   Þar urðu einnig mörg minniháttar sprungugos sem hér eru ekki talin með en það er ljóst að þetta fallega fjall mun ekki hvílast að eilífu.

Eldstöð ár hefst ár lýkur gosefni mk3 tegund goss Auðkenni Aðrar upplýsingar
Reykjanesskagi -11000 4,8 flæðigos Sandfellsheiði stórt dyngjugos á Reykjanesskaga
Reykjanesskagi -11000 5,2 flæðigos Þráinsskjöldur stórt dyngjugos á Reykjanesskaga
Langjökull -8000 flæðigos Skjaldbreið Stærsta dyngja landsins- mynduð í einu löngu gosi
Bárðarbunga -6500 21 hraungos Þjórsárhraunið mikla
Vestmannaeyjar -6000 goshrina í kerfinu
Hekla -5000 3 súrt gjóskugos H5 lagið
Þeistareykjakerfið -5000 8 flæðigos Trölladyngja eitt af stærstu dyngjugosunum
Reykjanesskagi -5000 6,8 flæðigos Heiðin há stórt dyngjugos á Reykjanesskaga
Vestmannaeyjar -4000 goshrina í kerfinu
Reykjanesskagi -3000 3,2 flæðigos Hrútagjárdyngja dyngjugos á Reykjanesskaga
Grímsnes -3000 Blandgos Grímsneseldar Allmikil eldsumbrot í Grímsnesi- Kerið ofl.
Reykjanesskagi -2700 3 flæðigos Leitin dyngjugos á Reykjanesskaga
Hekla -2500 10,8 súrt gjóskugos H4 lagið
Snæfellsjökull -2000 sprengigos Annað af tveim stórgosum í jöklinum á nútíma
Hekla -900 13,5 súrt gjóskugos H3 lagið Mesta Heklugosið á nútíma
Öræfajökull -800 gjóskugos gos í jökli
Hengill 0 Blandgos Hrina í Hengilskerfinu – Nesjavallaeldar
Torfajökull 100 hraungos Samhliða gosi úr Bárðarbungukerfi
Öræfajökull 100 gjóskugos gos í jökli
Snæfellsjökull 200 sprengigos Annað af tveim stórgosum í jöklinum á nútíma
Öræfajökull 500 gjóskugos gos í jökli
Scroll to Top