Vatnajökull í stuði
Hvorki meira né minna en fjórar eldstöðvar undir Vatnajökli hafa sýnt jarðskjálftavirkni í vikunni. Er hér um að ræða Bárðarbungu sem reyndar hefur verið óróleg lengi, Grímsvötn og Kverkfjöll. Allt eru þetta þekktar eldstöðvar sem hafa oft gosið á sögulegum tíma en sú sem hvað verst lætur þessa dagana er eldstöðin Esjufjöll í suðaustanverðum jöklinum, ca. 20 km, NA af Öræfajökli. Á meðfylgjandi kortið sem fengið er af vef Veðurstofunnar sjást skjálftarnir. Neðarlega til hægri eru skjálftar í Esjufjöllum. …
Vatnajökull í stuðiRead More »
