Snarpir skjálftar í Hamrinum

Nokkuð snarpir jarðskálftar urðu í Hamrinum í vestanverðum Vatnajökli að kvöldi 25. september.  Stærsti skjálftinn varð kl. 23 36 og mældist 3,7 á Richter.  Skjálftahrinur eru algengar í Hamrinum sem er megineldstöð í Bárðarbungukerfinu.

Jarðskjálftar halda einnig áfram undir Bárðarbungu sjálfri en þar hafa verið viðvarandi skjálftar mánuðum saman og virðist tíðni þeirra aukast ef eitthvað er.  Það virðist vera að eldstöðvakerfin undir vestanverðum Vatnajöki séu að búa sig undir eldgos.

1 thought on “Snarpir skjálftar í Hamrinum”

Þitt álit

Scroll to Top
%d bloggers like this: