![Skjálftaupptök á Reykjaneshrigg síðan í morgun. Grænu stjörnurnar tákna skjálfta yfir M 3 af stærð. Myndin er fengin af vef Veðurstofu Íslands.](http://eldgos.is/wp-content/uploads/2014/05/reykjaneshryggur_skjalftar9mai2014-300x263.jpg)
Skjálftahrina hófst undan Reykjanesi, skammt suðvestur af Geirfugladrangi í morgun. Tveir skjálftar hafa verið sterkastir, 3,6 og 3,4 stig en mikill fjöldi smærri eftirskjálfta hefur fylgt og hrinan er enn í fullum gangi. Hrinur á þessum slóðum eru mjög algengar og standa gjarnan í nokkra daga. Svo vill til að fyrir réttu ári, 9.maí 2013 varð hrina svo að segja á nákvæmlega sama stað.
Þess má vænta að hrinan standi yfir næstu sólarhringa en skjálftar um og yfir M 3 gætu fundist á Reykjanesskaganum og um og yfir M 4 víðar á Suðvesturlandi ef þeir eiga sér stað.