Jarðskjálftar á undarlegum stað

Birta á :

Síðustu sólarhringa hafa mælst jarðskjálftar um 30-33 km. norðan við Hveravelli eða í nágrenni við Blöndulón.  Sprungusveimur Langjökuls kerfisins nær líklega þetta langt en venjulega er þó mest skjálftavirkni í því kerfi við suðvesturenda jökulsins eða í norðurhluta hans.  Á vef Veðurstofunnar má sjá þessa skjálfta en þeir eru sumir hverjir mjög djúpir, upptök allt niður á 22 km. dýpi sem er nú frekar óvenjulegt. 

UPPFÆRSLA:  Fimmtudagskvöldið 28. okóber herti mjög á hrinunni og mældist skjálfti um 3,7 á Ricther og annar um 3,1.  Sá sterkari virðist eiga upptök á 18,5 km. dýpi.  Styrkleiki hans var síðar færður niður í 3,2 eftir yfirferð. 

2 thoughts on “Jarðskjálftar á undarlegum stað”

  1. Ekkert það sem við köllum í daglegu tali eldfjall, en útjaðar Langjökuls- eldstöðvakerfisins nær á þessar slóðir.

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt.

Scroll to Top