Síðuhöfundur varð þeirrar ánægju aðnjótandi um helgina að heimsækja eitt frægasta eldfjall heims, Krakatá (Krakatoa) í Indónesíu. Krakatá var eyja á milli hinna tveggja stóru eyja í Indónesíu, Súmötru og Jövu. Í gríðarlegu gosi árið 1883 splundraðist eyjan og hvarf að mestu í hafið. Hér er fróðleikur um það gos.
Anak Krakatoa eða barn Krakatá hefur risið úr sæ í öskjunni og er þar nokkuð viðvarandi eldvirkni. Síðast var virkni i Anak Krakatoa fyrir aðeins 2 vikum og eins og sést á myndunum þá stíga enn gosgufur uppúr toppgígnum.
Það var 3ja tíma ökuferð frá höfuðborg Indónesíu, Jakarta, að ströndinni við vesturenda Jövu og svo 90 mínútna bátsferð til Krakatá. Ógleymanlegt ævintýri.