Í gær var lýst yfir óvissustigi vegna skjálftanna fyrir norðan. Var það gert eftir að virknin færðist í austurátt að svæðinu norðan við Gjögur. Það sem helst er óttast er að hrinan komi af stað stórum skjálfta á Flateyjar-Húsavíkur misgenginu en þar geta skjálftar farið yfir 7M af stærð.
Nú er ljóst að skjálftarnir eru siggengisskjálftar i sigdalnum í Eyjafjarðarál og skjálftar þar verða varla stærri en orðið er. Hinsvegar eru skjálftar á Flateyjar-Húsavíkurmisgenginu annars eðlis, þ.e. misgengisskjálftar.
mbl.is – næg spenna fyrir 6,8 stiga skjálfta.