Um kl. 1 í nótt fannst jarðskjálfti víða á Norðurlandi sem átti upptök um 16km austur af Grímsey. Skjálftar hafa verið þarna undanfarna daga og þeir stærstu um 3 stig þar til stóri skjálftinn kom nú í nótt en fyrstu mælingar benda til þess að hann hafi verið um 5,3 M af stærð. Skjálftinn er á Tjörnesbeltinu en þar eru stórir skjálftar vel þekktir. Skjálftahrinan nú virðist vera á sömu brotalínu og skjálfti sem varð árið 1910 og er talinn hafa verið um 7 stig, þ.e. nyrstu brotalínunni í Tjörnesbeltinu sem teygir sig inn í Öxarfjörð. Hér má sjá umfjöllun um svæðið eftir jarðskjálftana i september í fyrra.
Fullvíst má telja að eftirskjálftar verða margir næstu sólarhringa en ómögulegt er að segja til um hvort þetta sé stærsti skjálftinn í þessari hrinu. Myndin er fengin af vef Veðurstofu Íslands. og sýnir skjálftaupptökin í hrinunni.
—
Fréttir fjölmiðla af skjálftanum í nótt
Pressan.is: Harður jarðskjálfti austur af Grímsey
mbl.is: Stór skjálfti austur af Grímsey
Ruv.is: Snarpur skjálfti fyrir norðan
—
Uppfært kl. 12:15
Óvissustigi lýst yfir
Almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi vegna jarðskjálftanna. Stóri skjálftinn í gær reyndist vera 5,5 M af stærð. Eins og búist var við hafa hundruð eftirskjálfta mælst, sá stærsti þeirra varð um kl. 9 í morgun og mældist 4,7. Einnig mátti búast við því að virknin teygði sig til suðausturs og það virðist einnig vera að gerast. Á þessu svæði er fjöldi misgengja og sprungna og óvíst hvaða áhrif þessir skjálftar hafa á þau. Eldvirkni á þessu svæði tengd skjálftunum er afar ólíkleg.
Uppfært 3.apríl kl. 00 30
Enn er mikil virkni á svæðinu og í kvöld urðu skjálftar uppá 4,7 og 4,4 talsvert suðaustan við skjálftaupptökin í gær og er ljóst að misgengið er að brotna upp í átt að Öxarfirði og Kópaskeri. Líklegt er að sú þróun haldi áfram.
Á neðri myndinni sem tekin er af vef Veðustofunnar um kl. 00 15 sést þessi færsla vel en grænu stjörnurnar tákna skjálfta yfir M 3,0. Þessi hrina er allsekkert einsdæmi á þessum slóðum, þarna varð öflug hrina árið 2002 með skjálfta yfir 5 M. Hrinan sem nú er í gangi er þó enn öflugri.