Enn og aftur er Katla að valda mönnum áhyggjum. Leiðni jókst í kvöld í Múlakvísl og einnig vatnshæð og hitastig. Af öryggisástæðum var þjóðveginum um Mýrdalssand lokað tímabundið meðan verið var að kanna aðstæður. Er þetta enn eitt dæmið um aukinn jarðhita í Mýrdalsjökli. Sigkötlum hefur fjölgað og þeir sem fyrir voru hafa stækkað til muna undanfarna daga. Katla er því nánast komin í gjörgæslu vísindamanna.
Mbl.is – Náið fylgst með Mýrdalsjökli
Ruv.is – Breytingar i Múlakvísl
Visir.is – Aukin leiðni í Múlakvísl og órói í Mýrdalsjökl