.
Í gærmorgun gekk yfir jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg, skammt sunnan við Eldey. Mældust um 150 skjálftar og 8 þeirra yfir M 3 , sá sterkasti 3,9. Líklegt er að sterkustu skjálftarnir hafi fundist lítillega á Suðurnesjum.
Hér var um að ræða hefðbundna hrinu á þessum slóðum sem tengist flekahreyfingum en slíkar hrinur ganga yfir árlega á þessum slóðum, jafnvel nokkrum sinnum á ári. Sérlega snörp hrina varð þarna vorið 2013 sem sjá má hér.
Myndin er fengin af vef Veðurstofu Íslands og sýnir upptök skjálftanna í gær. Hrinan virðist hafa gengið yfir á um 8 tímum en gæti þó vel tekið sig upp aftur miðað við söguna.