Um kl. hálf tvö í dag varð jarðskjálfti M 5,2 við Vatnafjöll sem eru skammt suðaustur af Heklu. Í fyrstu var talið að skjálftinn gæti boðað upphaf Heklugoss en nánari úrvinnsla sýnir að þetta er nokkuð dæmigerður Suðurlandsskjálfti, alls ótengdur eldsumbrotum. Stórir jarðskjálftar hafa oft áður orðið á þessu svæði, t.d. árið 1987 þegar varð þar skjálftu uppá tæplega M 6 við Vatnafjöll. Þversprungur Suðurlandsskjálftabeltisins ná yfir á þetta svæði.
Þar sem stutt er liðið frá síðustu Suðurlandsskjálftum (2000 og 2008) þá er ólíklegt að þetta boði fleiri skjálfta annarsstaðar á Suðurlandsundirlendinu.
Hvað Heklu varðar hinsvegar þá er hún búin að vera tilbúin í gos frá árinu 2006. Það má þó vel vera að hún sé komin í sinn eðlilega fasa eins og hún var á öldum áður, með ca 1-2 gos á öld og þau þá í stærri kantinum. Sé svo þá geta vel liðið 30 ár eða meira þar til hún gýs næst. En hvort hún er komin í þann fasa aftur er þó ekki nokkur leið að vita.
Jarðskjálftar af þessari stærðargráðu er þó óþekktir hvað varðar undanfara Heklugoss, venjulega eru þeir miklu vægari.