Um kl. 16 30 varð jarðskjálfti með upptök nærri Fagradalsfjalli á Reykjanesskaga 3,2 af stærð og á um 7,4 km dýpi samkvæmt gögnum Veðurstofu Íslands. Skjálftinn fannst í Grindavík enda upptökin mjög nálægt bænum. Nokkrir smærri eftirskjálftar hafa fylgt. Skjálftar á þessum slóðum eru algengir og fyrir rétt rúmu ári varð skjálfti upp á 3,7 á svipuðum stað.
Myndin er fengin af vef Veðurstofu Ísland og sýnir upptök skjálftans í dag.
Mikið hefur dregið úr skjálftavirkninni við Bláfjöll eftir stóra skjálftann á fimmtudaginn. Þessir skjálftar tengjast ekki enda langt á milli upptaka þeirra.
Umfjallanir í fjölmiðlum:
Mbl.is : 3,2 stiga skjálfti við Grindavík
Ruv.is : Jarðskjálfti á Reykjanesskaga