Jarðskjálftahrinan sem hófst í lok janúar NA af Grímsey hefur færst mikið í aukana síðastliðinn sólarhring. Skjálftarnir eru margir og þéttir. Stærsti skjálftinn mældis M 4,1. Jarðfræðingar útiloka ekki frekari tíðindi en þá er verið að tala um stóran jarðskjálfta frekar en eldgos sem eru fátíð á þessum slóðum.
Tjörnesbrotabeltið er hinsvegar fært um að framkalla jarðskjálfta allt að stærð M 7 og er orðið all langt síðan slíkur skjálfti hefur orðið. Það sem einkennir oft hrinur á þessum slóðum er að þær geta verið nokkuð langvarandi og færast gjarnan í aukana eftir því sem líður á þær. Það er einmitt tilfellið með hrinuna núna.
Þetta svæði er sniðreksbelti sem tilheyrir Tjörnesbeltinu. Þá er einnig vitað um jarðhitavirkni á þessu svæði þannig að talsverð umbrot eru viðvarandi á þessum slóðum.
UPPFÆRT 19.FEBRÚAR
Mikill kraftur hljóp í jarðskjálftahrinuna snemma að morgni 19.febrúar. Hafa vel á annað þúsund skjálfta mælst síðustu sólarhringa og stærsti skjálftinn mældinst M 5,2. Er þetta orðin öflugasta jarðskjálftahrina á Grímseyjarsvæðinu í 30 ár.
Mælingar benda ekki til kvikuhreyfinga. Þessir skjálftar tengjast flekahreyfingum.