Í morgun mældist skjálfti upp á 3,7 um 30 km suðaustur af Kolbeinsey. Einhverjir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið. Jarðskjálftar á þessu svæði sem tilheyrir Tjörnesbrotabeltinu eru algengir og geta orðið mjög harðir. Hefur einmitt verið bent á það nýlega að langt er síðan sterkir skjálftar hafa orðið úti fyrir norðurlandi en þar geta skjálftar orðið jafnharðir og Suðurlandsskjálftarnir og jafnvel öflugri.
Eldgos á þessum slóðum eru hinsvegar sjaldgæf. Síðasta eldgos sem vitað er um úti fyrir norðurlandi varð árið 1867 við Mánáreyjar um 5 sjómílur útaf Tjörnesi.
Myndin er fengin af vef Veðurstofu Íslands
Fréttir í fjölmiðlum:
DV.is Jarðskjálfti að stærð 3,7 suðaustur af Kolbeinsey
Mbl.is Jarðskjálfti upp á 3,7 stig