Á Skírdag hófst skjálftahrina við Tungnafellsjökul sem er 1540 metra hátt lítt virkt eldfjall um 25 km. norðvestur af Bárðarbungu. Af og til hafa komið fram skjálftar í sprungusveim fjallsins, þeir stærstu árið 1996 þegar spennulosun varð á svæðinu vegna elgossins í Gjálp. Tungnafellsjökull er á mörkum þess að teljast virk eldstöð, aðeins er vitað um tvö lítil hraun við eldfjallið sem gætu verið frá nútíma.
Um 20 skjálftar hafa mælst í hrinunni, sá stærsti tæplegar 3 á Richter varð í nótt. Athygli vekur að flestir eru skjálftarnir á um 10-12 km dýpi sem gæti bent til einhvernskonar kvikuhreyfinga undir eldstöðinni.
Meðfylgjandi mynd er fengin af skálftavefsjá veðurstofu Íslands.
Fréttir í öðrum miðlum um skjálftana:
mbl.is Jarðskjálftahrina við Tungnafellsjökul
vísir.is Skjálftahrina við Tungnafellsjökul
dv.is Jarðskjálftahrina hófst á Skírdag
ruv.is Skjálftar við Tungnafellsjökul
Annar fróðleikur um Tungnafellsjökul Meistaravörn Þórhildar Björnsdóttur, úrdráttur.