Jarðskjálftahrina sem hefur verið í gangi síðustu sólarhringa skammt Suðvestur af Kópaskeri hefur færst í aukana síðasta sólarhringinn. Hátt í 1000 skjálftar hafa mælst í hrinunni og þeir stærstu um og yfir M 4. Skjálftarnir finnast vel á Kópaskeri og í nágrenni. Skjálftasvæðið tilheyrir Tjörnesbrotabeltinu þar sem skjálftar eru algengir og í sjálfu sér ekkert óvanalegt við hrinuna. Hinsvegar þarf að hafa í huga að á þessu svæði geta orðið mjög stórir skjálftar samanber Kópaskersskjálftann árið 1976 sem mældist rúmlega M 6. Sá skjálfti tengdist gos- og rekhrinu á Kröflusvæðinu en nú er ekkert slíkt í gangi en samt aldrei hægt að útiloka stóran skjálfta.
Hrinan sem nú er í gangi hefur verið öflug og síður en svo að draga úr henni þegar þetta er skrifað.