Siðastliðinn sólarhring hafa orðið allmargir smáskjálftar á víð og dreif við Mýrdalsjökul en þó flestir í Kötluöskjunni og svo vestan við hana, á Goðabungusvæðinu. Þá hófst hrina smáskjálfta á Hengilssvæðinu sem tengist væntanlega niðurdælinu vatns á svæðinu á vegum Orkuveitunnar.
Samkvæmt óyfirförnum mælingum á vef Veðurstofunnar varð skjálfti upp á 5,0 um 196 km SSV af Eldeyjarboða á Reykjaneshrygg um kl. 19:24. Telja verður líklegt að sjá skjálfti hafi ekki orðið eða sé mun minni en þessar mælingar sýna.