.
Laust fyrir kl. 3 í nótt hófst jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg, um 10-15 Km. suðvestur af Geirfugladrangi. Stærsti skjálftinn hefur mælst skv. sjálfvirkum mælum Veðurstofunnar 3,6 M en tveir aðrir yfir 3 og mikill fjöldi minni skjálfta. Skjálftahrinur á þessum slóðum eru algengar. Fyrr á þessu ári urðu hrinur á svipuðum slóðum, í febrúar, mars og apríl.
Myndin er fengin af vef Veðurstofu Íslands og sýnir skjálftana í nótt.