Á dv.is er áhugaverð frétt um umbrotin á Krísuvíkursvæðinu sem hafa staðið yfir lengi með síendurteknum jarðskjálftahrinum og landrisi. Land hefur risið á svæðinu um 7 cm á síðastliðnum 16 mánuðum. Ekki er alveg ljóst ennþá hvað veldur landrisinu en annaðhvort er það kvikusöfnun eða breytingar á jarðhitakerfinu. Jarðvísindamenn fylgjast náið með svæðinu. Síðustu staðfestu eldgos urðu í kerfinu um árið 1180, á Sveifluhálsi vestan við Kleifarvatn.
Eins og fram kemur í greininni þá geta liðið áratugir frá því eldstöð byrjar að undirbúa gos þar til það brýst upp. Eldgos hefur að öllum likindum ekki orðið á Reykjanesskaga síðan á 13. öld og goshlé því orðin afar löng á svæðinu sem eins og allir vita er mjög eldbrunnið.