Eldfjallasafnið í Stykkishólmi heimsótt

Birta á :

Eldgos.is heimsótti í vikunni Eldfjallasafnið í Stykkishólmi sem Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur stofnsetti fyrir nokkrum misserum.  Þetta er afar fróðlegt safn þar sem sjá má listaverk frá öllum heimshornum sem tengjast eldgosum auk ýmissa muna bæði frá Íslandi og erlendis frá.  Haraldur hefur á starfsferli sínum komið víða við þar sem eldfjöll eru annarsvegar og ber safnið þess glögglega merki.  Er óhætt að mæla með þessu fróðlega safni fyrir alla sem eiga leið um á þessu svæði.  Vefslóð safnsins er www.eldfjallasafn.is.  Haraldur heldur einnig úti fróðlegri bloggsíðu og er slóðin á hana http://vulkan.blog.is/blog/vulkan/ Hér að neðan eru myndir frá safninu, smellið á smámyndirnar til að opna stærri mynd.

1 thought on “Eldfjallasafnið í Stykkishólmi heimsótt”

  1. Magni R. Magnússon

    Góðan dag. ég rakst á þessa mynd sem sýnir eldgos neðansjávar á Íslandi. Getur þú, vinsamlegast frætt mig um þetta gos?
    vinsamlegast, með þökkum.

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt.

Scroll to Top