Í kvöld mældust snarpir jarðskjálftar í norðurbrún Bárðarbunguöskjunnar. Stærsti skjálftinn mældist M 4,9 og er stærsti skjálftinn í Bárðarbungu frá goslokum árið 2015. Tveir aðrir nokkuð snarpir skjálftar mældust, M 3,8 og 3,7. Skjálftarnir voru fremur grunnir eða á tæplega tveggja kílómetra dýpi. Þá hafa á annan tug smærri skjálfta mælst.
Þrýstingurinn í kringum eldstöðina virðist vaxa hægt og örugglega og skjálftarnir stækka i samræmi við það. Það er athyglisvert að fyrir nákvæmlega ári síðan varð skjálftahrina í eldstöðinni á nákvæmlega sama stað nema hvað þeir skjálftar voru töluvert dýpri. Sjá hér
Á meðan Bárðarbunga er að færa sig upp á skaftið virðist Öræfajökull vera að róast og þar er lítið um skjálfta. Líklega hefur kvikuinnskotið sem þar hefur verið í gangi stöðvast , í bili amk.