Tveir nokkuð snarpir skjálftar urðu í norðausturbarmi Bárðarbunguöskjunnar sunnudaginn 20.desember. Mældist sá stærri M 3,5 og hinn M 3,1. Jarðfræðingar telja þessa skjálfta merki um kvikuinnstreymi undir eldstöðina og að gos geti jafnvel orðið innan tveggja ára.
Það er vitað að gos í Bárðarbungueldstöðinni eru sjaldan stök, þar verða gos- og rekhrinur sem geta staðið yfir í áratugi og verður að telja mjög líklegt að slík hrina hafi hafist í ágúst í fyrra þegar gaus í Holuhrauni. Ómögulegt er að segja til um hvar í sprungukerfi Bárðarbungu næsta gos verður en fjallið sjálft, þ.e. Bárðarbunga er alltaf líklegasti staðurinn og þá yrði gosið væntanlega undir jökli.
Vaxandi óróa og skjálftavirkni fór að gæta í Bárðarbungu í sumar og virðist skjálftavirknin aukast hægt og örugglega. Þá hafa einnig mælst af og til djúpir (um 20km) lágtíðniskjálftar undir Bárðarbungu en þeir eru klárlega merki um kvikuhreyfingar.
Visir.is: Skjálftar í Bárðarbungu merki um kvikustreymi