Allmargir skjálftar urðu við Kistufell í norðvestanverðum Vatnajökli í gær 14.okt. Stærstu skjálftarnir voru um 3,1 M og fundust ekki í byggð. Kistufell og nærliggjandi svæði tilheyrir Bárðarbungueldstöðinni og skjálftahrinur hafa orðið þarna af og til undanfarin ár, í Kistufelli, Bárðarbungu sjálfri og í Hamrinum sunnan við Bárðarbungu. Síðast varð umtalsverð hrina við Kistufell í Apríl á þessu ári. Þá er skemmst að minnast hlaups undan Köldukvíslarjökli við Hamarinn í júlí 2011 sem mögulega stafaði af litlu eldgosi undir jöklinum. Enginn órói fylgdi skjálftunum í gær og fáir skjálftar hafa orðið á svæðinu í dag.
Myndin er fengin af vef Veðurstofu Íslands.