Í maí var opnað að Tryggvagötu 11 í Reykjavik Volcano House eða eldgosahúsið. Fyrir áhugafólk um eldgos og jarðfræði yfirhöfuð er þetta mjög áhugavert framtak. Þar eru til sýnis hraun- og gjallsýni frá ýmsum gosum, einstakar myndir, einstakir steinar úr Íslenskri náttúru svo eitthvað sé nefnt. Þá er boðið uppá kvikmyndasýningar á klukkutíma fresti frá gosunum í Vestmannaeyjum og Eyjafjallajökli. Kaffihús er á staðnum og tilvalið að fá sér kaffi og “meðþví” meðan Volcano House er skoðað. Eldgos.is leit við á Volcano House og mælir eindregið með heimsókn þangað!