Skjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg um 45-50 km. VSV af Reykjanestá í morgun. Stærsti skjálftinn hingað til mældist 3,1. Mikið hefur dregið úr hrinunni síðustu klukkustundir en hún gæti þó vel tekið sig upp aftur. Hrinur á þessum slóðum eru algengar enda á flekaskilum.
Myndin ef fengin af vef Veðurstofu Íslands og sýnir upptök skjálftanna.