.
Bætt hefur verið við efnisflokknum “Ýmis fróðleikur” í valmynd síðunnar og þar er ætlunin að safna saman fróðlegum greinum og pistlum um jarðfræði. Fyrsta greinin fjallar um jarðskjálftann mikla við Japan í mars 2011. Þetta var einn af stærstu jarðskjálftum sem mælst hafa á jörðinni og olli flóðbylgjan í kjölfar hans gríðarlegu tjóni. Greinin var upphaflega skrifuð sem rigerð í HÍ og er því með nokkuð fræðilegu ívafi en ætti þó að vera auðskiljanleg og vonandi fróðleg!