- Enn einn gígur opnaðist á gossprungunni í nótt
- Sprunga opnaðist á milli jarðeldanna í nótt
- NÝJAR GOSSPRUNGUR OPNAST – SVÆÐIÐ RÝMT
- Gosið tveggja vikna gamalt – Stöðugt hraunrennsli
- GOSIÐ Í FAGRADALSFJALLI ER DYNGJUGOS – ÞAÐ FYRSTA Á ÍSLANDI Í ÞÚSUNDIR ÁRA
- NOKKUÐ HEFUR DREGIÐ ÚR GOSINU
- ELDGOS HAFIÐ VIÐ FAGRADALSFJALL
- SKJÁLFTAR M 5,4 OG 5,0 Í DAG VIÐ FAGRADALSFJALL
- No Earthquakes
Enn ein skjálftahrinan við Kistufell
(http://vedur NULL.is/skjalftar-og-eldgos/jardskjalftar/vatnajokull/#view=map)Undanfarið hefur verið heldur órólegt í Bárðarbungukerfinu í Vatnajökli og þá helst i kringum Kistufell sem er um 25 km. norðaustur af hásléttu (öskju) Bárðarbungu. Aðfaranótt sunnudags mældust tveir skjálftar yfir 3 á richter og fjölmargir smærri. Flestir skjálftarnir eru á talsverðu dýpi, um 7-10 km, og ekkert sem bendir til þess að kvika sé í þann veginn að brjótast upp á yfirborðið. Sem fyrr er svæðið þó mjög virkt og líkur á að fyrr en síðar gjósi í Bárðarbungukerfinu. Síðasta goshrina á þessum slóðum varð á árunum 1862-4.
Gos í Bárðarbungukerfinu geta þróast með þrennum hætti: Í fyrsta lagi gos í eða við öskjuna sjálfa í jöklinum. Vitað er að árið 1477 varð allstórt gos af þessu tagi. Í öðru lagi geta orðið kvikuhlaup til suðvesturs og virðist þetta gerast á um 5-800 ára fresti. Síðast varð slikur atburður árið 1480, Veiðivatnagosið. Er því lýst hér. (http://www NULL.eldgos NULL.is/storgos-eftir-landnam/bar%C3%B0arbunga-vei%C3%B0ivotn-1480) Það er athyglisvert að þetta mikla gos á sér stað aðeins fáum árum eftir mikið gos í jöklinum. Kvikuhlaup til suðvesturs með allstóru gosi á jökullausu svæði varð einnig i kringum árið 870 og myndaði Landnámslagið svokallaða sem er tvílitt öskulag enda gaus á sama tima í Torfajökulskerfinu. Það gerðist reyndar einnig árið 1480. Í þriðja lagi verða gos norðaustur af Bárðarbungu, í eða norðan Kistufells og jafnvel á jökullausu svæði þar norður af. Slíkt gerðist síðast á árunu 1862-4 eins og áður sagði. Þetta eru hættuminnstu gosin í Bárðarbungusvæðinu enda víðsfjarri mannabyggðum og komi gos upp á jökullausu svæði veldur það engu tjóni. Það gildir auðvitað allt annað um stórgos i jöklinum sjálfum, þar kemur bæði til öskufall og flóðahætta.
Myndin er fengin af vef Veðurstofu Íslands og sýnir skjálfta í Vatnajökli undanfarna sólarhringa.
Athugasemdir
- Aðrar færslur (20)
- Askja (6)
- Bárðarbunga (35)
- Eldfjöll erlendis (6)
- Eyjafjallajökull (4)
- Grímsvötn (7)
- Hekla (4)
- Hengill (3)
- Jarðskjálftar erlendis (2)
- Katla (23)
- Kverkfjöll (3)
- Langjökull (9)
- Öræfajökull (1)
- Reykjaneshryggur (9)
- Reykjanesskagi (42)
- Suðurlandsbrotabeltið (3)
- Tjörnesbrotabeltið (13)
- Vestmannaeyjar (1)
- Bloggsíða Haralds Sigurðssonar eldfjallafræðings
- Eldfjallasafn í Stykkishólmi
- Futurevolc – Catalogue of Icelandic Volcanoes
- Hið Íslenska Náttúrufræðifélag
- Jarðvísindastofnun Háskólans
- Jón Frímann – jarðskjálftablogg á ensku
- Lava Centre Hvolsvöllur
- Ljósbrá steinasafn Hveragerði
- Steinasafnið í Hveragerði facebook síða
- Veðurstofan – jarðskjálftar
- Volcano House – Reykjavík
- Volcano.si.edu – Gos um víða veröld
- Volcanocafe – bloggsíða á ensku um jarðfræði
- Volcanodiscovery.com – Fróðleg síða um eldfjöll
Skildu eftir svar