27. Apríl 2021
Þær breytingar virðast hafa orðið á gosvirkninni að einn af gígunum sem opnuðust 13. Apríl er orðinn langvirkastur meðan frekar lítið líf er í öðrum og nokkrir alveg hættir að gjósa eða sýna neitt lífsmark.
Þetta er þróun sem almennt er talin verða í dyngjugosum, að þau opnist á sprungum en virknin færist að mestu á einn gíg þegar líða tekur á gosið. Þetta sést ágætlega á vefmyndavél Rúv.
Annað sem er helst að frétta af gosinu:
- Kvikuframleiðslan er enn á milli 5-7 rúmmetra á sekúndu . Allra nýjasta mæling sýnir 6,3 m3 á sekúndu.
- Hraun hefur runnið niður í Meradali úr tveimur áttum og stutt í að það loki af hrygginn sem Morgunblaðsmyndavélin er staðsett á. Enn vantar þó mikið upp á að fylla Meradalina af hrauni.
- Gosórói rokkar nokkuð samkvæmt mælum.