Um 200 jarðskjálftar hafa mælst í allsnarpri hrinu við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga í dag. Tveir skjálftanna mældust um M 4 og fundust vel á Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu.
Skjálftarnir virðast liggja á tveim samsíða SV-NA sprungum og eru sniðgengisskjálftar og engin merki um kvikuhreyfingar. Það er svosem ekkert óvanalegt við snarpa hrinu á þessum stað þó algengara sé að þær verði á Krísuvíkursvæðinu, en það liggur um 10-15 km vestar.
Hrinan er enn í fullum gangi þegar þetta er ritað um kl 17 30 en langflestir skjálftarnir eru á milli M 1- M2 af stærð og frekar grunnir eða á 2-4 km dýpi. Þarna eru greinilega sniðgengissprungur að brotna.
Jarðskjálftahrinur á Reykjanesskaga geta verið nokkuð þrálátar og því má alveg búst við skjálftum næstu daga á svæðinu. Sjaldgæft er að mjög stórir skjálftar verði á þessum slóðum, M 5 er eiginlega hámarkið.