Jarðskjálftahrina hófst við Geirfuglasker ca. 25 km. suðvestur af Reykjanestá um kl. 20 30 í kvöld. Skjálftarnir eru flestir milli 2-3 á Richter samkvæmt mælum veðurstofunnar en athygli vekur að flestir þeirra eru á um 10-15 km dýpi. Það er frekar djúpt miðað við hefðbundna flekaskjálfta á eða við Ísland. Hrinan er enn í fullum gangi en þess ber að geta að skjálftar á þessum slóðum á Reykjaneshrygg eru mjög algengir.
Fyrir rúmum mánuði varð heldur öflugri hrina úti fyrir Reykjanesi en það var fjær landi en hrinan í kvöld. Þá er skemmst að minnast skjálftanna við Hafnarfjörð í byrjun mars. Það virðist því nokkur óróleiki í gangi á vestara gosbeltinu.
Myndin er fengin af vef Veðurstofu Íslands og sýnir upptök skjálftanna í kvöld.