Skjálfti sem mældist 3.1 á Richter varð í Kötlu í Mýrdalsjökli kl. 18:53 í gærkvöldi og annar um 2.3. Samkvæmt frétt á mbl.is mældust þeir mjög grunnt og því jafnvel talið að um hrunskjálfta sé að ræða af völdum íshruns fremur en eiginlega jarðskjálfta. Eru upptökin í norðaustanverðri öskjunni. Enginn órói er á mælum og fátt sem bendir til einhverra atburða í Kötlu á næstunni. Hefur Katla reyndar verið mjög róleg frá goslokum í Eyjafjallajökli og látið öðrum eldfjöllum eftir athyglina eins og allir vita.