Jarðskjálfti, 3,4 að stærð varð í Kistufelli skammt n.a. af Bárðarbungu í Vatnajökli í nótt. Skjálftar urðu bæði fyrir og eftir stærsta skjálftann en þeir voru allir undir 2 að stærð. Skjálftar á þessum slóðum eru mjög algengir í seinni tíð og tengjast einhvernskonar hreyfingum í Bárðarbungukerfinu.
Myndin er fengin af vef Veðurstofu Íslands