Í nótt varð jarðskjálftahrina í Kötlu. Stærsti skjálftinn var samkvæmt upphaflegum mælingum 3.8 ár Richter en eitthvað virðist stærð skjálftans á reiki því skömmu síðar var hann lækkaður í 2.6. Hann virðist þó hafa verið hækkaður aftur skv. vef veðurstofunnar í upprunalegan styrk. Skjálftarnir röðuðu sér á SV-NA línu frá miðri öskjunni og til norðausturs. Ró komst aftur yfir svæðið síðla nætur.
Þetta er framhald þess óróa sem verið hefur í Mýrdalsjökli undanfarið og bendir til einhverra hreyfinga í kvikuhólfi Kötlu. Enn sem komið er eru skjálftar þó tiltölulega vægir miðað við það sem vænta má í undanfara Kötlugoss ef um slíkt er að ræða. Myndin er fengin af vef veðurstofunnar og sýnir upptök skjálfta í Kötlu undanfarinn sólarhring.