Lítið hlaup virðist vera hafið í Múlakvísl sem rennur undan Mýrdalsjökli. Rafleiðni hefur aukist mikið í ánni síðustu daga sem bendir til þess að jarðhitavatn renni í hana. Rennsli jókst svo verulega í kvöld og er enn að aukast á miðnætti. Það er alltaf spurning hvernig þetta jarðhitavatn brýst fram.
Í gær mældist öflugur jarðskjálfti í Kötlu M 4,5. Hrinur verða gjarnan í Kötlu síðsumars og frameftir hausti en það tengist bráðnun á jöklinum. Jarðhitavirkni undir jöklinum bræðir hann einnig og getur valdið skjálftum og minniháttar jökulhlaupum eins og nú virðist vera að gerast.
Hægt er að fylgjast með rennsli í Múlakvísl á vef Veðurstofunnar.