Eldgosaárinu 2010 er nú að ljúka og með viðeigandi hætti – Eldstöðin Bárðarbunga lætur vita af sér með skálftahrinu nálægt Kistufelli um 20 km. norðaustur af Bárðarbungu. Það hefur verið viðvarandi órói á þessu svæði lengi. Fyrr í vikunni var einnig skjálftavirkni í Bárðarbungu sjálfri eins og sést á meðfylgjandi mynd, bláu punktarnir eru skjálftar í Bárðarbungu en þeir rauðu eru flestir í nánd við Kistufell. Smáskjálftar sjást þarna einnig nærri Öskju og norður af Kverkfjöllum. Myndin er fengin af vef Veðurstofu Íslands.
Eldgos.is óskar landsmönnum gleðilegs árs og friðar.