Rétt fyrir kl.3 í nótt vöknuðu margir íbúar á suðvesturhorni landsins við jarðskjálfta. Greina mátti drunur á undan skjálftanum og svo titring sem stóð yfir í fáeinar sekúndur. Skjálftinn átti upptök sunnarlega á Hellisheiði, rúma 3 km vsv af Skálafelli og mældist M 4,4 af stærð.
Skjálftinn hefur væntanlega verið harðastur í Hveragerði, Selfossi, Ölfusi og byggðarlögum suður með sjó, t.d. Þorlákshöfn. Um 25 eftirskjálftar hafa mælst 10 klst. síðar en allir litlir.
Þetta er brotaskjálfti á flekaskilum og þó hann eigi upptök á mjög eldbrunnu svæði þá bendir ekkert til annars en að um stakan brotaskjálfta sé að ræða.
Þetta er jafnframt við vestari endann á Suðurlandsskjálftasvæðinu. Í skjálftunum árin 2000 og 2008 vantaði í raun stóran skjálfta á þessu svæði til að “klára” ferlið. Þetta er þó klárlega ekki sá skjálfti, til þess hefði hann þurft að vera mun stærri. Hvort að sá skjálfti komi yfirhöfuð fyrr en í næstu Suðurlandsskjálftahrinu er erfitt að segja til um.