Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni varð jarðskjálfti sem mældist af stærðinni 4,2 við Grímsfjall í Vatnajökli í morgun. Skömmu áður varð skjálfti upp á 3,5. Búist hafði verið verið gosi á þessum slóðum í byrjun nóvember á síðasta ári þegar hlaup varð úr Grímsvötnum en það gerðist ekki. Þarna er virkasta eldstöð landsins og jarðskjálftar algengir. Nokkur órói hefur verið viðvarandi í eldstöðvum í Vatnajökli undanfarið, sérstaklega við Grímsvötn og Bárðarbungu. Einnig hafa orðið skjálftahrinur við Esjufjöll austarlega í jöklinum og þá mælast skjálftar af og til við Kverkfjöll í norðurbrún jökulsins. Ekki er talið að eldgos sé beinlínis yfirvofandi á þessum slóðum en Grímsvötn þó hvað líklegust.