Umsjónarmaður Eldgos.is heimsótti um helgina hið nýja “Lava Centre” á Hvolsvelli. Lava Centre er , svo notaður sé þeirra eigin texti: “LAVA er tæknileg, gagnvirk afþreyingar- og upplifunarmiðstöð til fræðslu um fjölbreytta eldvirkni og jarðskorpuhreyfingar á Íslandi og hvernig landið hefur orðið til á milljónum ára.”
Er skemmst frá því að segja að Lava Centre kom mér verulega á óvart. Þarna hefur verið unnið frábært starf af miklum metnaði og algjörri fagmennsku. Sérstaklega var það öll gagnvirknin sem síðuhöfundur hreifst af. Margir snertiskjáir og í einum salnum var gagnvirkur risaskjár sem náði yfir þrjár hliðar salarins og sýndi þær fimm eldstöðvar sem eru í næsta nágrenni við Hvolsvöll- gjósandi!
Sýningin er mjög fræðandi og myndræn. Hraunrennsli í návígi, upplífun jarðskjálfta, möttulstrókurinn undir Íslandi – öllu er þessu lýst eins vel og hægt er. Byggingin sjálf er sérlega skemmtileg og fellur vel í landslagið. Auk sýningarsala er stór og smekklega innréttaður veitingasalur þar sem verð á mat og veitingum eru sanngjörn. Þá er verslun með mynjagripi og vörur tengdar eldvirkni á staðnum.
Heimasíða sýningarinnar: Lava Centre. Einnig er á sýninguna undir “Tenglar um jarðfræði”.
Hér að neðan eru nokkrar myndir frá sýningunni. Hægt er að smella á þær til að stækka.