Skjálftar við Surtsey
Í nótt mældist skjálfti rétt norður af Surtsey M 3,4. Ekki er vitað til þess að skjálftinn hafi fundist í Eyjum né annarsstaðar. Þrír eftirskjálftar hafa mælst á bilinu 1-1,5. Af og til mælast smáskjálftar á þessum slóðum en þetta er stærsti skjálftinn í 27 ár eða frá 1992.
Annað sem vekur athygli er að skjálftarnir eru djúpir, á 12-15 km dýpi en oftar en ekki benda skjálftar á svo miklu dýpi til kvikuhreyfinga. Það er þó ekkert ennþá sem bendir til þess að meiri atburðir séu í aðsigi.